Velska

Velska
Cymraeg
Málsvæði Bretland
Heimshluti Wales
Fjöldi málhafa 750,000+
Sæti ekki með efstu 100
Ætt Indóevrópskt

 Keltneskt
  Eyjakeltneskt
   Brýþonskt
    Velska

Skrifletur Latneskt stafróf
Opinber staða
Opinbert
tungumál
Fáni Wales Wales
Tungumálakóðar
ISO 639-1 cy
ISO 639-2 wel/cym
SIL cym
ATH: Þessi grein gæti innihaldið hljóðfræðitákn úr alþjóðlega hljóðstafrófinu í Unicode.

Velska (Cymraeg eða y Gymraeg) er brýþonskt tungumál í keltnesku málaættinni talað í Wales, einkum norð-vestast, og á svæðum á Englandi nálægt landamærunum við Wales. Velska hefur verið þekkt undir ýmsum heitum í gegnum söguna, meðal annars „breska“ og „kambríska“.

Samkvæmt breska manntalinu árið 2011 tala 19 % allra Walesbúa eldri en þriggja ára velsku eða 562.000 manns. Þar af geta 77 % (431.000 manns) talað, lesið og skrifað velsku. 73 % allra Walesbúa eða 2,2 milljónir manns segjast hafa enga velskukunnáttu. Bera má þetta saman við manntalið árið 2001, þar sem 20,8 % Walesbúa sögðust geta talað velsku, þar af 57 % (315,000 manns) reiprennandi.

Árið 2011 varð velska opinbert mál í Wales með nýjum lögum sem tóku gildi þá. Velska er eina opinbera tungumálið á Bretlandi; enska og önnur tungumál hafa enga opinbera stöðu.


From Wikipedia, the free encyclopedia · View on Wikipedia

Developed by Tubidy