Venslagagnagrunnur er safn gagna sem lúta reglum um vensl gagnanna. Hugtakið vísar til gagna og skema (rökræn framsetning gagnanna). Grunnurinn er safn af venslum (töflum) og býður upp á aðferðir til að nálgast innihaldið eftir fyrirfram skilgreindum leiðum. Innihald grunnsins býr í skemum, sem innihalda töflur. Tafla (enska Relation) er skilgreind sem safn (Set) af röðum (Tuples) sem hafa sömu dálka (Attributes eða Columns). Venslalíkanið gerir ráð fyrir að hvorki raðir né dálkar í venslum hafi sérstaka röðun.
Hugtakið venslaðir gagnagrunnar var upphaflega skilgreint og sett fram af E.F. Codd.[1]
Codd setti fram átta leiðir til að nálgast gögn úr vensluðum gagnagrunnum. Fyrstu fjórar voru ættaðar úr hefðbundinni mengjafræði:
- Sammengisvirkinn (Union) spyrðir saman raðir úr tvennum venslum og fjarlægir allar endurteknar raðir úr niðurstöðinni (Result set). Sammengi virkinn er jafngildur SQL UNION virkjanum.
- Sniðmengivirkinn (Intersection) býr til safn raða (set) sem tvenn vensl eiga sameiginlega. Sniðmengi er sett fram í SQL með INTERSECT virkjanum.
- Mismunamengivirkinn (Compliment) vinnur á tvennum venslum og skilar safni raða úr fyrri venslunum sem ekki eru til staðar í seinni venslunum. Mismunamengi er útfært í SQL með EXCEPT eða MINUS aðgerðum.
- Mengjamargfeldi af tvennum venslumm er ekki takmarkað á neinn hátt, það er allar raðir úr fyrri venslunum búa til raðir með öllum röðum úr seinni venslunum. Mengjamargfeldi er útfært í SQL sem CROSS JOIN samsteypuaðgerðin.
Aðgerðirnar sem Dr. Codd lagði til og ótaldar eru innihalda:
- Úrval, takmarkanir og aðgerðir á röðum úr venslum, sem takmarka úttakssettið við þær raðir sem uppfylla ákveiðin skilyrði, þ.e. hlutmengi. SQL jafngildi úrvals er SELECT skipunin ásamt WHERE virkjanum.
- Úrval án endurtekninga er val úr venslum án þess að endurtekningar séu í úttakssettinu. SQL GROUP BY setningin eða DISTINCT hlutinn í sumum SQL málískum má nota til að fjarlægja endurtekningar úr úttakssettinu.
- Samsteypa virkinn sem skilgreindur er í vensluðum gagnagrunnum er oftast nefndur náttúruleg samsteypa. Í þeirri tegund samsteypu eru tvenn vensl tengd saman á þeim dálkum sem þau eiga sameiginlega. SQL nálgun á náttúrulegri samsteypu er INNER JOIN samsteypu aðgerðin.
- Vensladeiling virkinn er heldur flóknari aðgerð, sem innifelur að nota raðir úr einum venslum til að hluta niður raðir í öðrum venslum. Vensladeiling er andstæða mengjamargfeldis.
Aðrar aðgerið hafa verið kynntar eða lagðar til síðan Dr. Codd setti fram sínar upphaflegu átta.
- ↑ Codd, E.F. (1970). „A Relational Model of Data for Large Shared Data Banks“. Communications of the ACM. 13 (6): 377–387. Afrit af upprunalegu geymt þann 12. júní 2007. Sótt 25. mars 2008.